Nýjar bækur í bóksölu Úlfljóts
Margar nýjar bækur prýða nú bókahillur Úlfljóts, en mikil gróska hefur verið í útgáfu nýrra rita á lokum síðasta árs og upphafi nýs árs.
Hér höfum við tekið saman þær nýjar bækur sem til sölu eru í bóksölu okkar ásamt stuttri samantekt um efni þeirra, en frekari upplýsingar má fá með að smella á titil bókar.
Ne bis in idem
höf. Róbert Ragnar Spanó
Í þessari bók er fjallað um 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu um ne bis in idem og áhrif bannreglunnar á íslenskan rétt. Hún er liður í fræðilegum rannsóknum mínum á sviði sakamálaréttarfars. Reglur um ne bis in idem, eða um neikvæð efnisleg réttaráhrif dóma í sakamálum, hafa verið lögfestar hér á landi um árabil eins og rakið er í bókinni. Ef ljóst væri að reglan í mannréttindasáttmálanum væri aðeins til fyllingar reglum landsrétar hefði vart verið þörf að rita heila bók um efnið. Eins og rökstutt er í bókinni er staðan hins vegar önnur. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur túlkað 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka þannig að gildissvið reglunnar og inntak einstakra skilyrða hennar er að veruleyti leyti víðtækara en leiðir af ákvæðum laga um meðferð sakamála um ne bis in idem.
Markmiðið með ritun bókarinnar var að rannsaka með eins tæmandi hætti og kostur er inntak og gildissvið 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu og áhrif reglunnar á íslenskan rétt.
Höfundur bókarinnar fékk styrk úr Fræðasjóði Úlfljóts við ritun bókarinnar.
Þjóðaréttur
höf. Björg Thorarensen & Pétur Dam Leifsson
Markmið þessa rits er að gera grein fyrir helstu grunnþáttum þjóðaréttar, með áherslu á uppruna, tilurð og túlkun réttarreglna sem gilda í samskiptum ríkja, alþjóðastofnana og annarra viðurkenndra þjóðréttaraðila. Auk þess eru útskýrð helstu einkenni og takmörk þessa réttarkerfis samfélags þjóðanna.
Ritinu er ætlað að svara brýnni þörf fyrir nýtt íslenskt fræðirit um þjóðarétt til kennslu á háskólastigi einkum á sviði lögfræði en það nýtist einnig þeim sem áhuga hafa á alþjóðamálum á vettvangi annarra fræðigreina.
Höfundar bókarinnar fengu styrk úr Fræðasjóði Úlfljóts við ritun bókarinnar.
Ábyrgð og aðgerðir - Niðurstöður þverfræðilegrar rannsóknar á einelti meðal barna á Íslandi
höf. Ýmsir
Sumar 2010 var Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni veittur myndarlegur styrkur úr Styrktarsjóði Margaretar og Bents Scheving Thorsteinssonar til að vinna, í samstarfi við Félagsráðgjafadeild, Lagadeild og Menntavísindasvið Háskóla Íslands, að rannsókn á einelti meðal barna í íslensku samfélagi.
Markmið rannsóknarinra var að greina m.a. stöðu þekkingar á tíðni eineltis, birtingarmyndum þess, menntun fagstétta og aðferðum til að sporna við einelti.
Þetta rit, sem hér birtist, er 1. tölublað nýrrar ritraðar Rannsóknarstofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni.
Mannréttindi lögaðila - Vernd lögaðila samkvæmt mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar, einkum 71. og 73. gr.
höf. Eiríkur Jónsson
Rit þetta byggir á doktorsritgerð Eiríks Jónssonar við lagadeild Háskóla Íslands.
Rannsóknin sem hér lítur dagsins ljós varðar stöðu lögaðila gagnvart mannréttindaákvæðum. Markmið hennar er að leita svara við því hvaða verndar lögaðilar njóta samkvæmt mannréttindaákvæðum íslensku stjórnarskrárinar, einkum 71. gr., sem mælir fyrir um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu og tengd réttindi, og 73. gr., sem mælir fyrir um tjáningafrelsi og tengd réttindi.
Réttarkerfi Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins - Megindrættir
höf. Sigurður Líndal & Skúli Magnússon
Markmið þessarar bókar er að setja fram stutta og aðgengilega lýsingu á meginatriðum ESB- og EES- réttar án þess að gert sé ráð fyrir sérstakri kunnáttu eða undirbúningi. Bókin hefur þróast sem kennsluefni og er von höfunda að hún geti nýst öllum þeim sem sækjast eftir stuttu yfirliti yfir helstu lagaleg atriði ESB og EES.
Allar þessar bækur og fleiri má nálgast í bóksölu Úlfljóts, kjallara Lögbergs. Háskóli Íslands eða með að senda forstöðumönnum bóksölunnar tölvupóst á ulfljotur [hjá] ulfljotur.is

