Úthlutun fyrir 2011
Úthlutun styrkja fyrir árið 2011
Þann 16. júní 2011 tók stjórn Fræðasjóðs Úlfljóts fyrir þær umsóknir sem bárust sjóðnum vegna úthlutunar fyrir árið 2011.
Kennarar við lagadeild Háskóla Íslands:
Hafsteinn Þórs Hauksson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands og Skúli Magnússon, dósent við lagadeild Háskóla Íslands og ritari EFTA dómstólsins fengu úthlutað styrk upp á 400.000 kr. fyrir að semja heildstætt rit til kennslu í réttarheimspeki við lagadeildina, en slíkt rit hefur ekki áður verið samið og taldi stjórn Fræðasjóðsins það mikilvægt verkefni sem rétt væri að styðja við bakið á.
Nafn verkefnisins: „Fyrirlestrar í réttarheimspeki"

