Úthlutanir styrkja
Á hverju vori er auglýst eftir umsóknum í Fræðasjóð Úlfljóts. Leitað er eftir því að styðja við fræða- og rannsóknarstarf á sviði lögfræðinnar, sér í lagi nemendur og kennara við lagadeild Háskóla Íslands.
Með hverri umsókn skulu eftirfarandi upplýsingar fylgja:
- Nafn umsækjanda
- Upplýsingar um menntun og störf
- Efni verkefnis - greinagerð um efnið, tímaáætlun og umfang verks
- Upphæð styrks sem sótt er eftir
- Önnur birt fræða-/rannsóknarverkefni umsækjanda
- Annað sem umsækjandi telur að eigi að fylgja með
Stjórn sjóðsins hefur heimild til að veita samtals styrki fyrir allt að 600.000 kr. á hverju ári, en einnig heimild til að hafna öllum umsóknum ef hún telur enga hæfa til þess að fá styrk.
Nánari upplýsingar um úthlutanir veita framkvæmdastjórar Úlfjóts.
