Skip to Content

Meginregla íslensks samningaréttar um rangar forsendur og endurreikningur ólögmætra gengislána

Höfundur: 
Ása Ólafsdóttir
Tölublað: 
1
Árgangur: 
65
Útgáfuár: 
2010

Ágrip

Í greininni er fjallað um ákvæði 1. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga um rangar forsendur.

Gengislán hjá fjármálastofnunum hér á landi hafa verið endurreiknuð eftir reglum laga nr. 151/2010, sbr. lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. Þar sem þeir vextir sem notast er við í endurreikningi lánanna voru hærri en þeir vextir sem lánasamningar um gengislán báru hluta lánstímans, hefur slíkur endurreikningur á grundvelli laganna leitt til þess í sumum tilvikum að ógreiddum eftirstöðvum afborgana hefur verið bætt við höfuðstól lánanna, jafnvel þótt lántakendur hafi greitt afborgunina að fullu miðað við upphaflegan útreikning á einstökum gjalddögum.

Fjallað er um gildi slíkra greiðslukvittana í tengslum við uppgjör lánasamninga í íslenskum rétti með hliðsjón af reglu 1. mgr. 32. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936.

 

English

This article examines the rule on wrong premises in par. 1 of Article 32 of the Act on Contracts, Agency and Void Legal Instruments, no. 7/1936.

Loans indexed with foreign currencies in national financial institutions have been recalculated in accordance with rules of Act on Interest and Price Indexation Act No. 38/2001, cf. Act No. 151/2010. Since the interest used in recalculating the loans was higher than the interest of agreements on exchange-rate loans, such recalculation on the basis of the act has in some instances led to unpaid balances of payments being added to the loan principals even though borrowers have made payment in full and in accordance with the original loan agreement on individual payment dates.

In the article the validity of payment receipts is discussed, taking into account par. 1 of Article 32 of the Act on Contracts, Agency and Void Legal Instruments, no. 7/1936.

Blaðsíðutal: 
5
Ritstjóri árgangs: 
Sindri M Stephensen
Úlfljótur, tímarit laganema