Skip to Content

Lögbergsdómur

Lögbergsdómur er glæsilegur dómsalur, sem staðsettur er á annarri hæð í Lögbergi. Dómsalurinn var formlega tekinn í notkun hinn 28. mars 2007. Frumkvæði að framkvæmdum við salinn áttu þáverandi framkvæmdastjórar Úlfljóts, Einar Björgvin Sigurbergsson og Jóhannes Eiríksson, en þeir sáu og um öflun styrkja vegna verkefnisins. Þau félög sem styrki veittu voru Landsbankinn, ESSÓ, Hollvinafélag lagadeildar og dómsmálaráðuneytið.

Lögbergsdómur í notkun

Dómsalurinn er nýttur við kennslu og býður kennurum upp á að leyfa nemendum að spreyta sig við að flytja mál fyrir dómi við sem raunverulegastar aðstæður. Enn fremur hefur dómsalurinn verið lánaður út til gerðardóma og félagssamtaka.

Í dómsalnum hefur og aðsetur sérstakur dómstóll laganema við Háskóla Íslands, er ber sama heiti og salurinn sjálfur, þ.e. Lögbergsdómur. Frumkvæði að stofnun dómstólsins var einnig í höndum Einars Björgvins og Jóhannesar, en stofnunin var samþykkt með breytingu á lögum Orators hinn 3. apríl 2007.

Á aðalfundi Orator, þann 31. mars 2011, voru samþykktar veigamiklar breytingar á ákvæðum laga Orator um dómstólinn og er nú starfandi einn fastur dómstjóri við dóminn sem ber ábyrgð á starfsemi dómstólsins og sér um að skipa dómara til setu í dómnum ásamt formanni Orators og ritstjóra Úlfljóts.

Dómstjóri Lögbergsdóms árið 2011 - 2012 er Jón Örn Árnason stud. jur., joa11[hja]hi.is

Lög Orator - um Lögbergsdóm

37. gr.

Orator og Úlfljótur skulu í sameiningu starfrækja dómstól laganema, er ber heitið LÖGBERGSDÓMUR, og skal hann halda dómþing í stofu 203 í Lögbergi.

Við LÖGBERGSDÓM skal skipa einn dómstjóra. Skal hann vera skipaður frá og með 1. júní ár hvert. Embætti dómstjóra skal vera auglýst laust til umsóknar eigi síðar en 1. maí. Þann einn má skipa í embætti dómstjóra sem lokið hefur BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands. Í embætti dómstjóra skal sá veljast sem skipunarmenn meta hæfastan til starfans. Við mat á hæfni umsækjanda skal meðal annars líta til námsárangurs, starfsreynslu og framtakssemi.

Eftirtaldir aðilar skipa í embætti dómstjóra: Fráfarandi dómstjóri LÖGBERGSDÓMS, formaður ORATORS og ritstjóri ÚLFLJÓTS.

Í LÖGBERGSDÓMI eiga sæti einn eða þrír dómarar. Dómarar skulu vera skipaðir í hvert mál fyrir sig. Þann einn má skipa í embætti Lögbergsdómara sem lokið hefur BA-prófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands. Við mat á því hvort skipa skuli einn eða þrjá dómara til setu í máli skal líta til umfangs málsins, viðfangsefni þess og mögulega þörf á sérþekkingu. Ef skipunarmenn í embætti Lögbergsdómara telja mál krefjast þess að skipaðir séu sérfróðir meðdómendur er það heimilt, skal þá Lögbergsdómari gegna formennsku í dómnum. Við mat á því hvern skal skipa í embætti Lögbergsdómara skal líta til námsárangurs, starfsreynslu, námsframvindu og samskiptahæfni. Ef skipaðir eru þrír Lögbergsdómarar skulu þeir kjósa sér forseta sem fer með formennsku í dómnum.

Eftirtaldir aðilar skipa í embætti Lögbergsdómara: Dómstjóri LÖGBERGSDÓMS, formaður ORATORS og ritstjóri ÚLFLJÓTS.

Dómstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri LÖGBERGSDÓMS og fer með fjárreiður hans. Dómstjóri undirbýr mál sem lögð eru fyrir LÖGBERGSDÓM og aðstoðar aðila máls eftir því sem við á.

Ef aðili fer ekki sjálfur með mál sitt fyrir LÖGBERGSDÓMI eða sá sem að lögum getur verið fyrirsvarsmaður hans í dómsmáli verður ekki öðrum en þeim er lokið hafa BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands falið að gæta þar hagsmuna hans.
Úlfljótur, tímarit laganema