mánudagurinn 6. september

Gerast ákskrifandi
Segja upp áskrift


Nýjasta tölublað Úlfljóts:

4. tbl. 62. árg 2009

Meðal efnis:

Skilyrði umboðssvika e. Andrés Þorleifsson

Stjórnskipuleg lögmætisregla e. Hafstein Dan Kristjánsson

Dómstólar geta ekki vikið sér undan því að taka afstöðu - Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum e. Kára Hólmar Ragnarsson

Hátíðisdagur Úlfljóts, 17. nóvember 2007

Hinn 17. nóvember 2007 fór fram hinn árlegi hátíðisdagur Úlfljóts. Við það tækifæri fagnaði tímaritið sérstaklega þeirri staðreynd að um 60 ár voru þá liðin frá því að fyrsta tölublað Úlfljóts leit dagsins ljós.

Líkt og áður var laganemum boðið þann dag að sækja sérstakt hátíðarmálþing Úlfljóts. Málþingið fór fram í hátíðarsal Háskóla Íslands og hófst kl. 14:00. Í þetta skiptið var málþingið tileinkað rannsóknum kennara við lagadeild Háskóla Íslands, en í samræmi við það voru framsögumönnum gefnar frjálsar hendur við val á umfjöllunarefni. Óhætt er að segja að umfjöllunarefn málþingsins hafi varðað hina margvíslegustu þætti lögfræðinnar og áttu því allir að geta hlustað á framsögu við sitt hæfi.

Dagskrá málþingsins hófst á því að Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson, ritstjóri Úlfljóts emeritus og fundarstjóri hátíðarmálþingsins, ávarpaði málþingsgesti og setti í kjölfarið málþingið með formlegum hætti. Bauð hann þá Björgu Thorarensen, forseta lagadeildar Háskóla Íslands og ritstjóra Úlfljóts emeritus, velkomin í ræðustólinn og flutti hún hátíðarávarp í tilefni dagsins. Í ávarpi sínu vék Björg m.a. að upphafsdögum tímaritsins sem og þeim mikla uppgangi, er átt hefur sér stað innan tímaritsins á undanförnum árum, t.a.m. með stofnun Fræðasjóðs Úlfljóts. Að ávarpi Bjargar loknu tók til máls Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri Úlfljóts. Stiklaði hann á stóru í sögu tímartsins og vék stuttlega að hinum nýstofnaða Lögbergsdómi, en á hátíðisdegi Úlfljóts árið 2006 höfðu framkvæmdastjórar tímaritsins tilkynnt að ráðist yrði í þá framkvæmd í upphafi ársins 2007. Þá tók til máls Þórarinn Örn Þrándarson, ritstjóri Úlfljóts. Líkt og Jóhannes gerði hann nokkra grein fyrir sögu tímartsins, auk þess sem hann lýsti starfi og undirbúningsvinnu þáverandi ritnefndar sem og fyrirhuguðum efnistökum væntanlegrar útgáfu. Að ávarpi Þórarins loknu flutti Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, fyrsta erindi hátíðarmálþingsins, er bar heitið Leið til þess að gera aðgang að höfundarverkum á netinu lögmætan án þess að íþyngja netnotendum um of. Að framsögu Eiríks lokinni tók til máls Dr. M. Elvira Méndez Pinedo, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, en framsaga hennar bar yfirskriftina Deconstructing European Law: a different insight on the law-making power of the Europen Court of Justice. Eðli málsins samkvæmt var erindið flutt á ensku, en þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem fyrirlestur fer fram á erlendu tungumáli á hátíðarmálþingi Úlfljóts. Í kjölfar þess flutti Eyvindur G. Gunnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, framsögu, er bar heitið Varnarþingsreglur í málum um skaðabætur utan samninga. Að lokum tók svo Eiríkur Jónsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, til máls og flutti erindi, sem bar yfirskriftina Þróun dómaframkvæmdar í málum vegna ærumeiðinga. Í kjölfar erindis Eiríks bauð fundarstjóri málþingsgestum að bera fram spurningar og nýttu nokkrir viðstaddir það tækifæri.

Að málþinginu loknu bauð svo Úlfljótur upp á léttar veitingar, en móttakan fór fram fyrir utan hátíðarsalinn. Alls sóttu um 75 hátíðarmálþingið og var það samdóma álit þeirra að sérlega vel hefði tekist til þetta árið.

Líkt og fyrri ár var að kvöldi hátíðisdagsins laganemum boðið til móttöku í Gyllta sal og Skuggabar Hótel Borgar. Að vanda mættu laganemar prúðbúnir, enda var snyrtilegur klæðnaður áskilinn í boðskortum þeim sem framkvæmdastjórn Úlfljóts sendi öllum móttökugestunum. Raunar var það svo að í fyrsta skipti var nú áskilið að klæðaburður gesta væri í samræmi við það, sem á enska tungu hefur verið nefnt „Black Tie Optional“. Í ljósi þess að hátíðisdagurinn var sérstaklega tileinkaður 60 ára afmæli tímaritsins var við skipulagningu móttökunnar tekin sú ákvörðun að hafa hana með nokkru öðru sniði og veglegri en undanfarin ár. Þegar gesti bar að garði Hótel Borgar tók á móti þeim fagur leikur sígildrar tónlistar. Um var að ræða strengjakvartett Bjarna Frímanns Bjarnasonar, Geirþrúðar Ásu Guðjónsdóttur, Joaquin Páls Palomares og Þorgerðar Eddu Hall, en öll eru þau ungir og mjög svo efnilegir hljóðfæraleikarar. Þá var gestum boðið upp á ljúffengar veitingar langt fram eftir kvöldi. Formleg dagskrá afmælismóttökunnar hófst á því að Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri Úlfljóts, ávarpaði móttökugesti stuttlega. Í kjölfarið kynnti hann svo fyrra skemmtiatriði kvöldsins, en það var söngur hins góðkunna söngvara, Bjarna Arasonar. Tók hann nokkur lög og kom laganemum þannig í góða sveiflu. Stuttu síðar steig Jóhannes aftur á svið og kynnti síðara skemmtiatriðið. Var þá um að ræða söng hins landsþekkta óperusöngvara, Bergþórs Pálssonar. Mikil fagnaðarlæti brutust þá út á meðal laganema, en fyrirsvarsmenn Úlfljóts grunaði ekki að Bergþór væri svo dáður meðal mikils meirihluta viðstaddra. Söng hann sígild lög á borð við Tondeleio, Det var brændevin i flasken og Svantes lykkelige dag. Óhætt er því að segja að söngur Bergþórs hafi slegið í gegn, enda hreif hann viðstadda með sér á þann hátt að óvíst er að slíkur fjöldasöngur hafi áður brotist út á meðal jafnmargra laganema hér á landi. Við lok eins lagsins voru öll ljós slökkt í Gyllta sal Hótel Borgar, þ.e.a.s. þeim sal þar sem skemmtiatriðin fóru fram. Enginn vissi þá hvað var í uppsiglingu. Andartaki síðar voru aðaldyr salarins opnaðar upp á gátt og rúllað inn í miðju salarins fjórum afmælistertum, er allar voru skreyttar tendruðum blysum sem lýstu salinn upp. Bergþór brýndi þá raustina að nýju og hóf að syngja afmælissönginn Úlfljóti til heiðurs við góðar undirtektir viðstaddra, en þess má til gamans geta að sungið var „Hann [Úlfljótur] á afmæli í ár“ í stað „Hann [Úlfljótur] á afmæli í dag“. Í kjölfarið söng Bergþór lokalag kvöldsins. Laganemar voru þó ekki á því að sleppa takinu af hinum mikilsvirta óperusöngvara og klöppuðu hann í tvígang upp á sviðið. Að því loknu kom Bergþór að máli við fyrirsvarsmenn tímaritsins og kvaðst vart muna eftir öðrum eins undirtektum, en þetta var nokkuð sem hann átti alls ekki von á. Ljóst má því vera að laganemar sem og Bergþór sjálfur skemmtu sér konunglega og þótti mikið til þessarar upplifunar koma. Í kjölfar flutnings Bergþórs var leikin létt danstónlist og stóðu hátíðarhöldin allt til miðnættis, en þá héldu sælir og glaðir móttökugestir hver í sína áttina. Alls mættu um 150 laganemar í móttökuna, auk nokkurra kennara sem nú var boðið í fyrsta skipti, og heppnaðist móttakan að allra mati mjög vel.  

Jóhannes Eiríksson ritaði

16|08|2010
Opnun bóksölu Úlfljóts

Bóksala Úlfljóts opnar aftur eftir sumarleyfi &ia...
10|08|2010
Efni í 64. árg.

Ritstjórn Úlfljóts, tímarits laganema, er ...


BÓKSALA
OPNUNARTÍMI

Mánudagar 12:00 - 14:00
Þriðjudagar 12:00 - 13:00
Miðvikudagar 12:00 - 14:00
Fimmtudagar 12:00 - 13:00
Föstudagar - LOKAÐ