UM LÖGBERGSDÓM
logbergsdomur@ulfljotur.is

Lögbergsdómur er nýr og glæsilegur dómsalur, sem staðsettur er á annarri hæð í Lögbergi. Dómsalurinn var formlega tekinn í notkun hinn 28. mars 2007. Frumkvæði að framkvæmdum við salinn áttu þáverandi framkvæmdastjórar Úlfljóts, Einar Björgvin Sigurbergsson og Jóhannes Eiríksson, en þeir sáu og um öflun styrkja vegna verkefnisins. Þau félög sem styrki veittu voru Landsbankinn, ESSÓ, Hollvinafélag lagadeildar og dómsmálaráðuneytið.
Í dómsalnum hefur og aðsetur sérstakur dómstóll laganema við Háskóla Íslands, er ber sama heiti og salurinn sjálfur, þ.e. Lögbergsdómur. Frumkvæði að stofnun dómstólsins var einnig í höndum Einars Björgvins og Jóhannesar, en stofnunin var samþykkt með breytingu á lögum Orators hinn 3. apríl 2007. Fjallað er um dómstólinn í VII. kafla laga Orators, þar sem nú segir:
37. gr.
Orator og Úlfljótur skulu í sameiningu starfrækja dómstól laganema, er ber heitið LÖGBERGSDÓMUR, og skal hann halda dómþing í stofu 203 í Lögbergi.
Í LÖGBERGSDÓMI eiga sæti þrír dómarar. Dómarar skulu skipaðir frá og með 1. júní ár hvert. Embætti dómara skulu auglýst laus til umsóknar eigi síðar en 1. maí. Þann einn má skipa í embætti Lögbergsdómara sem lokið hefur BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands sem og námskeiðinu Hlutverk dómara og lögmanna.
Lögbergsdómarar kjósa sér forseta til eins árs í senn og varaforseta til sama tíma. Forseti fer með yfirstjórn LÖGBERGSDÓMS. Forseti skiptir verkum milli dómara og úthlutar þeim málum. Forseti ákveður hvort dómur skuli vera fjölskipaður eða eigi. Varaforseti gegnir störfum forseta þegar hann hefur forföll eða er fjarstaddur. Forseta skal vera heimilt, hvenær þá er þörf þykir og að höfðu samráði við aðra dómara réttarins, að tilnefna réttinum sérstaka meðdómara, til aðstoðar við meðferð einstakra mála. Dómur skal þó ávallt skipaður einum fastadómara við réttinn.
Skipa skal dómstjóra við LÖGBERGSDÓM til eins árs í senn frá og með 1. júní ár hvert. Embættið skal auglýst laust til umsóknar eigi síðar en 1. maí. Dómstjóri skal hafa lokið BA-prófi í lögfræði við Háskóla Íslands.Dómstjóri stýrir daglegum rekstri dómstólsins og fer með fjárreiður hans, auk þess að gegna öðrum störfum sem forseti kann að mæla fyrir um. Dómstjóri undirbýr þau mál sem lögð eru fyrir LÖGBERGSDÓM. Dómstjóri hefur yfirumsjón með hraðnámskeiði í réttarfari, sem fram fer í september ár hvert, og sér um útgáfu yfirlits yfir helstu þætti námskeiðisins.
Eftirtaldir aðilar skipa í embætti Lögbergsdómara og dómstjóra: Forseti Lögbergsdóms, formaður Orators og ritstjóri Úlfljóts.
Forseti og dómstjóri skipa dómstólnum skrifstofustjóra og ritara til eins árs í senn. Embættin skulu auglýst laus til umsóknar. Skrifstofustjóri og ritari skulu vera á 2. og 3. ári laganáms við Háskóla Íslands, en æskilegast er að þeir séu ekki á sama námsári. Skrifstofustjóri fer með yfirumsjón og eftirlit húsakynna LÖGBERGSDÓMS. Ritari skal hafa umsjón með þingbókum, dómabókum, atkvæðabókum, málaskrám og fundargerðarbókum. Þá ber ritari ábyrgð á auglýsingu þinghalda sem og opinberri birtingu dóma LÖGBERGSDÓMS. Ennfremur skulu skrifstofustjóri og ritari aðstoða dómstjóra við undirbúning þeirra mála sem lögð eru fyrir LÖGBERGSDÓM. Skrifstofustjóri og ritari skulu hafa samráð við dómstjóra um framkvæmd verkefna sinna. Forseti og dómstjóri setja skrifstofustjóra og ritara nánari verklagsreglur.
Tillögur til breytinga á lögum Orators - lagðar fram á aðalfundi Orators hinn 22. mars 2007.
Tillögur til breytinga á lögum Orators - lagðar fram á aðalfundi Orators hinn 22. mars 2007 - athugasemdir.
Tillögur til breytinga á lögum Orators - lagðar fram á aðalfundi Orators hinn 22. mars 2007 - samþykktar á framhaldsaðalfundi hinn 3. apríl 2007.
Tillaga til breytingar á lögum Orators - lögð fram á aðalfundi Orators hinn 27. mars 2008 - samþykkt á framhaldsaðalfundi hinn 9. apríl 2008.