mánudagurinn 6. september

Gerast ákskrifandi
Segja upp áskrift


Nýjasta tölublað Úlfljóts:

4. tbl. 62. árg 2009

Meðal efnis:

Skilyrði umboðssvika e. Andrés Þorleifsson

Stjórnskipuleg lögmætisregla e. Hafstein Dan Kristjánsson

Dómstólar geta ekki vikið sér undan því að taka afstöðu - Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum e. Kára Hólmar Ragnarsson

HÁTÍÐISDAGUR

Hugmyndin að baki hátíðisdegi Úlfljóts spratt frá þáverandi framkvæmdastjórum tímaritsins, Einari Björgvin Sigurbergssyni og Jóhannesi Eiríkssyni.

Hugsun framkvæmdastjóra var sú að fjölga merkisdögum í lífi laganema. Líta má á daginn sem eins konar mótvægi haustannar við árshátíð Orators sem fram fer á vorönn. Fyrsta hátíðisdaginn þótti framkvæmdastjórum viðeigandi að tileinka nýstofnuðum Fræðasjóði Úlfljóts. Ætlun framkvæmdastjóra var þó ekki að mynda venju í þessum efnum. Það fellur því í skaut framkvæmdastjóra og ritstjóra hverju sinni að ákveða yfirskrift hátíðisdagsins sem og hátíðarmálþingsins. Vonir framkvæmdastjóra standa einungis til þess að með framtaki sínu hafi þeir ýtt úr vör árlegum viðburði er mun festa sig í sessi í félagslífi laganema; viðburði sem glæðir tímaritið nokkru lífi, brýtur upp hið hefðbundna mynstur útgáfunnar og eykur þar með veg tímaritsins sem og virðingu.

Fyrsti hátíðisdagur Úlfljóts - 4. nóvember 2005

Hinn 4. nóvember 2005 var í fyrsta skipti haldinn hátíðisdagur Úlfljóts. Í tilefni af honum fór fram fyrsta hátíðarmálþing tímaritsins og var það að þessu sinni tileinkað Fræðasjóði Úlfljóts, sem stofnaður var fyrr á þessu ári að frumkvæði framkvæmdastjóra. Málþingið fór fram í sal nr. 132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, og hófst það kl. 14:00. Á meðan gestir komu sér fyrir í sætum sínum léku framhaldsskólanemarnir Gréta Salóme Stefánsdóttir og Kristján Hrannar Pálsson léttan undirleik á fiðlu og píanó.

Dagskrá málþingsins hófst á því að Einar Björgvin Sigurbergsson, annar framkvæmdastjóra Úlfljóts, ávarpaði málþingsgesti og lýsti því sem framkvæmdastjórar höfðu áorkaðu í starfi sínu á síðasta skólaári. Þá greindi hann og frá fyrirætlun þeirra á núverandi skólaári. Næstur til máls tók Jóhannes Eiríksson, hinn framkvæmdastjóri Úlfljóts, en hann fjallaði um uppruna og starfsemi Fræðasjóðs Úlfljóts. Að loknu ávarpi sínu tók svo Jóhannes við fundarstjórn, en bauð því næst ritstjóra Úlfljóts, Þorvald Heiðar Þorsteinsson, velkominn í ræðustólinn. Þorvaldur flutti stutt ávarp varðandi sögu Úlfljóts, sem spannar nú 58 ár, en forvitnilegt er til þess að líta hve tímaritið hefur vaxið og dafnað á þeim árum. Þá tók til máls Róbert Ragnar Spanó, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, en hann var fyrsti styrkhafi Fræðasjóðs Úlfljóts af fimm til að kynna niðurstöður rannsókna sinna. Róbert hlaut styrk fyrir rannsóknarverkefnið Um hugtakið lögskýringu og lögskýringarkenningar. Að framsögu Róberts lokinni kynnti Ólafur Páll Vignisson, laganemi á 3. ári við lagadeild Háskóla Íslands, niðurstöður rannsóknarverkefnis síns, Vegarollur og umferðaröryggi. Þá tók til máls Haraldur Steinþórsson, laganemi á 4. ári við lagadeild Háskóla Íslands, en hann hlaut styrk fyrir rannsóknarverkefnið Um gildi fyrirvara í samskiptasendingum. Að erindi Haraldar loknu tók til máls Höskuldur Eiríksson, laganemi á 4. ári við lagadeild Háskóla Íslands. Hann hlaut styrk fyrir rannsóknarverkfnið Áhættutaka í knattspyrnu. Þá kynnti Ágúst Karl Guðmundsson, lögfræðingur, niðurstöður rannsóknarverkefnis síns, Verlagning milli fyrirtækja - milliverðlagning. Að lokum var svo fyrsta gullorða Úlfljóts afhent. Orðan er æðsta heiðursmerki tímaritsins og skv. nýrri reglugerð um heiðursorðu Úlfljóts skal gæta hófs í veitingu hennar. Þá hefur og verið skipuð sérstök orðunefnd sem fjalla skal um þau málefni er varða orðuveitingar tímaritsins. Hönnuður orðunnar var Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri Úlfljóts. Þorvaldur Heiðar, ritstjóri Úlfljóts, greindi frá því að Þorvaldur Garðar Kristjánsson hefði orðið fyrir valinu sem fyrsti handhafi gullorðunnar, en hann stofnaði tímaritið og var fyrsti ritstjóri þess. Þar sem Þorvaldur gat ekki verið viðstaddur málþingið mætti í hans stað dóttir Þorvaldar Garðars, Elísabet, og tók hún á móti orðunni ásamt syni sínum, Þorvaldi Garðari. Elísabet ávarpaði þá málþingsgesti og las upp einkar hugljúfa þakkarkveðju frá Þorvaldi Garðari. Að svo búnu sleit fundarstjóri málþinginu.

Að málþinginu loknu bauð svo Úlfljótur upp á léttar veitingar, en móttakan fór fram fyrir utan ráðstefnusalinn í Öskju og léku þar Gréta og Kristján sem fyrr undurfagra tóna á fiðlu og píanó. Alls mættu rúmlega 100 gestir á málþingið, en þar á meðal voru forseti Alþingis, hæstaréttardómarar, kennarar við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrum ritstjórar Úlfljóts.

Um kvöldið var svo haldin móttaka fyrir laganema í Gyllta sal og Skuggabar Hótel Borgar. Þangað mættu laganemar prúðbúnir enda var snyrtilegur klæðnaður áskilinn í boðskortum þeim sem framkvæmdastjórn Úlfljóts sendi öllum móttökugestunum. Tímaritið bauð gestum upp á ljúffengar veitingar langt fram eftir kvöldi og lék framhaldsskólaneminn Anna Björnsdóttir fagra tóna á flygil og söng. Hátíðarhöldin stóðu allt til miðnættis, en þá héldu sælir og glaðir móttökugestir hver í sína áttina. Alls mættu um 200 laganemar í móttökuna sem heppnaðist að allra mati mjög vel.

 

 

16|08|2010
Opnun bóksölu Úlfljóts

Bóksala Úlfljóts opnar aftur eftir sumarleyfi &ia...
10|08|2010
Efni í 64. árg.

Ritstjórn Úlfljóts, tímarits laganema, er ...


BÓKSALA
OPNUNARTÍMI

Mánudagar 12:00 - 14:00
Þriðjudagar 12:00 - 13:00
Miðvikudagar 12:00 - 14:00
Fimmtudagar 12:00 - 13:00
Föstudagar - LOKAÐ