UM VEITINGU HEIÐURSMERKJA
Heiðursorða Úlfljóts
Í upphafi septembermánaðar árið 2005 ákváðu þáverandi framkvæmdastjórar tímaritins, Einar Björgvin Sigurbergsson og Jóhannes Eiríksson, að stofna til sérstaks heiðursmerkis Úlfljóts. Ákveðið var að hafa tvö stig innan heiðursmerkisins; annars vegar heiðursorðu Úlfljóts og hins vegar gullorðu Úlfljóts, sem er æðsta heiðursmerki tímaritsins. Orðunefnd Úlfljóts tekur ákvörðun um veitingu orðanna. Um orðurnar fer annars samkvæmt reglugerð nr. 1/2005 um heiðursorðu Úlfljóts, en þeim er lýst nánar á undirsíðunum hér á hægri spássíu vefsíðunnar.

Heiðursorða Úlfljóts
Hönnuður útlits heiðursorðunnar var Jóhannes Eiríksson, þáverandi framkvæmdastjóri tímaritsins
Paragraff-kross Úlfljóts
Þann 16. febrúar 2007 samþykkti þáverandi orðunefnd tillögu frá starfsmönnum framkvæmdasviðs um stofnun lægra setts orðu. Í framhaldinu varð til Paragraff-kross Úlfljóts. Innan þess er einnungis eitt stig og fara framkvæmdastjórar Úlfljóts með veitingavald. Þó að orðan sé stofnuð 2007 var hún ekki formlega veit fyrr en 16. febrúar 2009. Framkvæmdastjórar og starfsmenn framkvæmdasviðs bera að jafnaði orðuna eftir að hafa veitt eins árs þjónustu til handa Úlfljóti hið minnsta. Orðan er krosslaga með paragraff merki í sér miðju og innan strendinga krossins er einkunnarorð þess ,,bona fide". Ástæða, skírskotun og uppruni paragraffsins, önnur en almenn tilvitnun í laganámið, er að finna í fyrsta félagsmerki Orators. Á 25. afmæli Orators árið 1954, tók stjórn Orators, félags laganema, þá ákvörðun að ,,paragraff stjarna" hönnuð af Erni Þór þáverandi ritara Orators skyldi verða merki laganema.

Hönnuðir útlits Paragrafskrossins voru Ívar Örn Ívarsson og William Fr Huntingdon-Williams, þáverandi starfsmenn framkvæmdasviðs.