mánudagurinn 6. september

Gerast ákskrifandi
Segja upp áskrift


Nýjasta tölublað Úlfljóts:

4. tbl. 62. árg 2009

Meðal efnis:

Skilyrði umboðssvika e. Andrés Þorleifsson

Stjórnskipuleg lögmætisregla e. Hafstein Dan Kristjánsson

Dómstólar geta ekki vikið sér undan því að taka afstöðu - Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum e. Kára Hólmar Ragnarsson

ÁGRIP

Úlfljótur, tímarit laganema, hefur verið gefið út lengst allra tímarita við Háskóla Íslands. Fyrsta tölublað þess leit dagsins ljós í lok febrúarmánaðar árið 1947. Frá þeim tíma hefur tímaritið verið gefið út á hverju ári, að undanskildu árinu 1951, og orðið efnismeira með hverju árinu sem líður.

Í Úlfljóti er að finna vandaðar greinar um íslenska sem og alþjóðlega lögfræði auk þess sem þar er að finna umfjöllun um það sem er efst á baugi í lögfræði hverju sinni. Þar eru m.a. reifaðir nýjustu dómar Hæstaréttar, fjallað um ný fræðirit á sviði lögfræði og greint frá helstu tíðindum sem berast frá Alþingi svo fátt eitt sé nefnt. Í tímaritinu eru og fluttar fregnir af hinu stranga og áhugaverða laganámi sem og hinu viðburðaríka starfi félagsstarfi Orators og Úlfljóts. Flestir höfundar eru lögfræðingar eða laganemar en auk þeirra hafa fjölmargir aðrir, sem láta sig lögvísindi varða, ritað greinar í Úlfljót.

Á hverju ári eru gefin út fjögur tölublöð og er hægt er að gerast áskrifandi að Úlfljóti með því að styðja á þar til gerðan hnapp á forsíðu vefsíðunnar. Áskriftargjald er kr. 2.900 m.vsk. á ári.

Þá starfrækir Úlfljótur fræða- og rannsóknasjóð, Fræðasjóð Úlfljóts, en honum er nánar lýst hér að neðan sem og undir tenglinum Fræðasjóður.

Um árabil hefur Úlfljótur rekið bóksölu í kjallara Lögbergs. Rekstur bóksölunnar  hófst árið 1987 og hefur haldið áfram óslitið síðan þá. Framkvæmdastjórar Úlfljóts fara með stjórn bóksölunnar, venju samkvæmt. Bóksalan býður nú upp á rúmlega 140 rit er varða lögfræði, en úrvalið hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

Enfremur er nú árlega haldinn sérstakur hátíðisdagur Úlfljóts, sem ætlað er að vera eins konar mótvægi við árshátíð Orators. en hugmyndina að deginum fengu þáverandi framkvæmdastjórar, Einar Björgvin Sigurbergsson og Jóhannes Eiríksson. Fyrsti hátíðisdagurinn fór fram hinn 4. nóvember 2005. Þá um daginn var í Öskju haldið hátíðarmálþing, er tileinkað var nýstofnuðum Fræðasjóði Úlfljóts, en um kvöldið var svo haldin móttaka á Hótel Borg og mættu þangað um 250 laganemar í sínu fínasta pússi.

Annars starfar Úlfljótur skv. VI. kafla laga Orators. Kafla þessum var breytt nokkuð mikið þegar samþykktar voru, með yfirgnæfandi meirihluta, lagabreytingatillögur á framhaldsaðalfundi Orators hinn 27. september 2005. Lagabreytingatillögurnar voru samdar af Jóhannesi Eiríkssyni og Einari Björgvin Sigurbergssyni, þáverandi framkvæmdastjórum Úlfljóts, og upphaflega lagðar fram af framkvæmdastjórum á aðalfundi Orators hinn 22. marz 2005. Tilskilinn fjöldi félagsmanna mætti þó ekki á aðalfundinn og því var ómögulegt að afgreiða tillögurnar. Samkvæmt lögum Orators voru þær því bornar undir framhaldsaðalfund. Í millitíðinni var tillögunum lítillega breytt. Að þeim breytingum stóðu Jóhannes Eiríksson, Einar Björgvin Sigurbergsson, Helgi Valberg Jensson, þáverandi formaður Orators, og Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson, þáverandi ritstjóri Úlfljóts.

VI. kafli laga Orators hljóðar nú sem hér segir:

IV. ÚLFLJÓTUR

28. gr.
Rit laganema heitir Úlfljótur. Fjögur rit skulu gefin út ár hvert. Fyrsta ritið skal gefa út eigi síðar en 31. október. Annað ritið skal gefa út eigi síðar en 31. janúar. Þriðja ritið skal gefa út eigi síðar en 15. marz og fjórða ritið skal gefa út eigi síðar en 15. september. Ritstjóri ber ábyrgð á efni ritsins og öðru efni sem gefið er út í nafni Úlfljóts. Ritið fá félagsmenn Orators sér að kostnaðarlausu gegn framvísun félagsskírteinis, en þó einungis sé þess vitjað innan níu mánaða frá útgáfu.

29. gr.
Úlfljótur skal starfrækja sjóð er ber heitið Fræðasjóður Úlfljóts. Markmið sjóðsins skal vera að efla fræðastarf og rannsóknarvinnu á sviði lögfræði, sérstaklega meðal laganema og kennara við lagadeild Háskóla Íslands. Styrkir skulu veittir að vori hvers árs og má heildarfjárhæð þeirra nema allt að kr. 600.000. Stjórn sjóðsins skipa: framkvæmdastjórar Úlfljóts, ritstjóri Úlfljóts, forseti lagadeildar Háskóla Íslands og forstöðumaður Lagastofnunar Háskóla Íslands. Laganemar skulu ávallt skipa meirihluta stjórnar sjóðsins. Nánar fer um sjóðinn skv. skipulagsskrá, sem sett skal af stjórn sjóðsins.

30. gr.
Í hverju tölublaði Úlfljóts skal birtast a.m.k. ein fræðigrein um lögfræðileg efni. Reynt skal að örva fræðistörf laganema með birtingu fræðigreina eftir þá, verðlaunasamkeppni o.þ.h. Heimilt er að skipa nefnd þriggja valinkunnra lögfræðinga, sem ritstjóri getur leitað álits hjá um efnisval blaðsins.

31. gr.
Aðalfundur kýs að hámarki sjö menn, er auk ritstjóra eiga sæti í ritstjórn Úlfljóts. Skal ritstjórnin vera ritstjóra til aðstoðar og ráðuneytis um öll mál er varða blaðið. Ritstjóri er formaður ritstjórnar.

32. gr.
Í upphafi septembermánaðar ár hvert skal stjórn Orators, að tillögu fráfarandi framkvæmdastjóra og ritstjóra Úlfljóts, skipa tvo laganema við Háskóla Íslands til að gegna stöðum framkvæmdastjóra Úlfljóts. Viðtakandi framkvæmdastjórar skulu þó eigi hefja störf fyrr en í upphafi októbermánaðar.
Þegar framkvæmdastjórar taka við starfi sínu skulu þeir setja sér sérstakar verklagsreglur er kveða m.a. á um föst mánaðarlaun er þeir þiggja fyrir störf sín. Verklagsreglurnar skulu samþykktar af ritstjóra sem og fráfarandi framkvæmdastjórum.
Framkvæmdastjórar skipa framkvæmdastjórn Úlfljóts. Framkvæmdastjórnin skal annast daglegan rekstur ritsins, dreifingu þess sem og öflun auglýsinga í það. Í því sambandi er framkvæmdastjórn heimilt að ráða sérstakan auglýsingasafnara. Framkvæmdastjórn ákveður kjör hans og ber ábyrgð á þeim. Framkvæmdastjórnin skal halda utan um og bera ábyrgð á fjárreiðum Úlfljóts sem og sjá um bókhaldsuppgjör tímaritsins. Þá skal stjórnin og annast rekstur bóksölu Úlfljóts sem og heimasíðu tímaritsins.
Fjárskuldbindingar, að fjárhæð kr. 200.000 eða meira, skulu framkvæmdastjórar bera undir ritstjóra Úlfljóts. Samningar sitjandi framkvæmdastjórnar, ritstjórnar eða stjórnar Orators er varða málefni Úlfljóts mega ekki gilda lengur en til upphafs síðara misseris þess skólaárs er viðtakandi stjórnir koma til með að sitja.

33. gr.
Ritstjóri og framkvæmdastjórar skipa stjórn sem og útgáfuráð Úlfljóts. Sérútgáfur á vegum Úlfljóts skulu vera í höndum útgáfuráðs. Ritstjóri stýrir fundum þess.

34. gr.
Hagnaði af starfsemi Úlfljóts skal eingöngu varið til reksturs, útgáfu og annarrar starfsemi á vegum Úlfljóts, laganemum til heilla, en ekki til reksturs Orators. Reikningum Úlfljóts skal haldið sérgreindum. Skal þeim lokað 2 sólarhringum fyrir aðalfund og skilað til endurskoðanda félagsins sólarhring fyrir aðalfund.

16|08|2010
Opnun bóksölu Úlfljóts

Bóksala Úlfljóts opnar aftur eftir sumarleyfi &ia...
10|08|2010
Efni í 64. árg.

Ritstjórn Úlfljóts, tímarits laganema, er ...


BÓKSALA
OPNUNARTÍMI

Mánudagar 12:00 - 14:00
Þriðjudagar 12:00 - 13:00
Miðvikudagar 12:00 - 14:00
Fimmtudagar 12:00 - 13:00
Föstudagar - LOKAÐ