fimmtudagurinn 9. september

Gerast ákskrifandi
Segja upp áskrift


Nýjasta tölublað Úlfljóts:

4. tbl. 62. árg 2009

Meðal efnis:

Skilyrði umboðssvika e. Andrés Þorleifsson

Stjórnskipuleg lögmætisregla e. Hafstein Dan Kristjánsson

Dómstólar geta ekki vikið sér undan því að taka afstöðu - Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum e. Kára Hólmar Ragnarsson

UM BÓKSÖLUNA

Um árabil hefur Úlfljótur rekið bóksölu í kjallara Lögbergs, rekstur bóksölunnar  hófst árið 1987 og hefur haldið áfram óslitið síðan þá. Framkvæmdastjórar Úlfljóts fara með stjórn bóksölunnar, venju samkvæmt. Bóksalan býður nú upp á rúmlega 150 rit er varða lögfræði, en úrvalið hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

Meginmarkmið bóksölunnar er annars vegar lægra vöruverð en gengur og gerist hjá öðrum bóksölum og hins vegar traust þjónusta í þágu laganema. Bóksalan er með vökult auga fyrir hvers konar verðbreytingum kennslurita og tekur ávallt mið af þeim í verðlagningu sinni. Óhætt er að segja að laganemar, sem og aðrir viðskiptavinir, spari sér umtalsverða fjármuni með því að beina viðskiptum sínum til bóksölu Úlfljóts.

Auk þess hefur  bóksalan staðið að útgáfu kennslurita og ritsafna  sem nemendur lagadeildar Háskóla Íslands styðjast við. Mikil gróska hefur verið á þeirri útgáfustarfsemi síðustu ár.

Úlfljótur býður laganemum í grunnnámi upp á þann möguleika að kaupa rit sín í þar til gerðum "bókapakka", sem inniheldur öll helstu rit hverjar annar. Hefur Úlfljótur boðið upp á þennan kost síðan árið 2005 og hefur fyrirkomulagið reynst afar vel, bæði er um að ræða hagræðingu fyrir nemendur auk þess sem 5% aukaafsláttur fylgir hverjum keyptum "bókapakka".

Bóksalan hefur einnig tekið að sér að senda pantanir bæði innanlands sem og til útlanda, fylgir þá reikningur með. Hægt er að koma áleiðis fyrirspurnum um bókaval, verð og kostnað með því að senda forsvarsmönnum bóksölunnar tölvupóst á ulfljotur@ulfljotur.is eða með símtali á auglýstum opnunartímum, þá s.562 3280.

16|08|2010
Opnun bóksölu Úlfljóts

Bóksala Úlfljóts opnar aftur eftir sumarleyfi &ia...
10|08|2010
Efni í 64. árg.

Ritstjórn Úlfljóts, tímarits laganema, er ...


BÓKSALA
OPNUNARTÍMI

Mánudagar 12:00 - 14:00
Þriðjudagar 12:00 - 13:00
Miðvikudagar 12:00 - 14:00
Fimmtudagar 12:00 - 13:00
Föstudagar - LOKAÐ