fimmtudagurinn 9. september

Gerast ákskrifandi
Segja upp áskrift


Nýjasta tölublað Úlfljóts:

4. tbl. 62. árg 2009

Meðal efnis:

Skilyrði umboðssvika e. Andrés Þorleifsson

Stjórnskipuleg lögmætisregla e. Hafstein Dan Kristjánsson

Dómstólar geta ekki vikið sér undan því að taka afstöðu - Um vernd efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda fyrir dómstólum e. Kára Hólmar Ragnarsson

26|05|2010
Lausar stöđur fyrir laganema hjá Úlfljóti

Vegna breytinga þykir nauðsynlegt að fjölga starfsmönnum á framkvæmdasviði hjá Úlfljóti, tímarit laganema. Ástæða þessa bréfs er því sú að auglýsa eftir dugmiklum laganemum til að gegna 1-2 lausum stöðum innan tímaritsins. Ljóst er að störf þessi veita góða sýn inn í félagsstarf laganema og eru verkefnin mjög svo fjölbreytt. Í því sambandi er rétt að taka fram að verkefnin standa í nánum tengslum við störf framkvæmdastjóra eins og þeim er lýst í 32. gr. laga Orators.

Hafir þú hug á að taka þátt í frekari uppbyggingu elsta tímarits við Háskóla Íslands sendu okkur undirrituðum þá umsókn í formi tölvubréfs á netfangið ulfljotur@ulfljotur.is. Í umsókninni skulu koma fram helstu persónupplýsingar sem og örstutt æviágrip. Þá er og æskilegt að þú gerir grein fyrir því hvers vegna þú hafir hug á starfinu. Umsóknina skal senda eigi síðar en mánudaginn 19. júlí nk.

Frekari upplýsinga og svara má afla hjá forsvarsmönnum Úlfljóts. Einnig er hægt að fá almennar upplýsingar um tímaritið á heimasíðu Úlfljóts, www.ulfljotur.is eða á heimasíðu Orators, félags laganema, http://orator.is/ulfljotur

Kveðja

Gísli Davíð Karlsson &
William Fr. Huntingdon-Williams
framkvæmdastjórar Úlfljóts


Til baka
16|08|2010
Opnun bóksölu Úlfljóts

Bóksala Úlfljóts opnar aftur eftir sumarleyfi &ia...
10|08|2010
Efni í 64. árg.

Ritstjórn Úlfljóts, tímarits laganema, er ...


BÓKSALA
OPNUNARTÍMI

Mánudagar 12:00 - 14:00
Þriðjudagar 12:00 - 13:00
Miðvikudagar 12:00 - 14:00
Fimmtudagar 12:00 - 13:00
Föstudagar - LOKAÐ